laugardagur, 12. júlí 2008

Bústaðarferð

Jæja þá er maður komin úr bústaðnum!


Ég átti notalegt kvöld í gær með Önnu Heiðu, Áslaugu og Marciu! Svo bættust í hópinn hálfvitarnir Einar og Höskuldur og svo komu Ester og Kjartan:)





Ég eldaði þennan dýrindis kjúkling og Anna gerði kartöflur og sósu og svo grillaði ég banana í eftirrétt!





Þetta var allt saman voða notalegt og svo í morgun þegar allir voru farnir nema ég og Marcia þá fórum við tvær í smá túrista leik (enda hún hálfgerður túristi), við fórum að Hraunfossum og Barnafossum og svo upp í Húsafell! Svo skutlaði ég henni út á skaga áðan og kom svo bara heim!





Ég sit ein heima í þessum töluðu orðum þar sem foreldrar mínir eru í brúðkaupi og Andrés úti að leika sér:)





En ég held ég hafi þetta ekki lengra að sinni




Sannur stuðningsmaður Íslenska landsliðsins:)

Engin ummæli: